Facebook

Hvað ætlar þú að gera á þínum eftirlaunum?

Besti aldurinn

Hefur þú hugsað um það að þegar þú hættir að vinna, þá færðu ekki greidd laun lengur og munt aðeins hafa tekjur af eignum þínum og lífeyrissparnaði?

Ef þú skiptir sólarhringnum upp þá er algengt að 1/3 tímans fari í vinnu, 1/3 í frítíma og 1/3 í svefn. Þegar þú hættir að vinna verður frítíminn 2/3. - Frítíminn kostar.

Því miður eru alltof margir sem ekki fá notið besta aldursins þegar starfsævinni lýkur. Ein af ástæðunum er að fólki sem komið er á eftirlaunaaldur stóð ekki til boða þau tækifæri til sparnaðar sem í boði eru í dag. Á starfsævinni brann sparnaður upp í verðbólgubáli enda var ekki um neina verðtryggingu að ræða, auk þess sem lífeyriskerfi okkar Íslendinga – eitt það besta sem völ er á - er ungt.

Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði, þá á vinnandi maður sem greitt hefur í lífeyrissjóð í 40 ár að fá greitt út úr þeim sjóði sem hann greiddi síðast í að lágmarki 54% af verðtryggðum mánaðarlegum meðaltekjum sínum á þessu tímabili.

Það eru því miður fáir sem geta lifað við sömu lífsgæði og áður á aðeins 54% (ef greitt hefur verið í lífeyrissjóð í 40 ár) af meðaltekjum sinum.

Þess vegna þarf að gera ráðstafanir á meðan á starfsævinni varir, til að tryggja hærri eftirlauna tekjur og geta notið "Bestu" áranna. T&R hjálpar þér við að leysa þetta mál.

 

Besti aldurinn

Innskrá