Söfnunarlíftrygging
Sameinar kosti reglulegs sparnaðar og skattalegrar hagræðingar líftryggingar.
Erlendis er þessi leið mjög vinsæl auk þess um tugþúsundir Íslendinga hafa valið þessa leið.
Tryggingar og ráðgjöf er eitt af fremstu fyrirtækjum Íslands í ráðgjöf á þessari sparnaðarleið.
Söfnunarlíftrygging er ekki skammtíma samningur.
Tryggingar og ráðgjöf býður ekki upp á söfnunarlíftryggingar til skemmri tíma, algengasti samningstíminn er 10-25 ár.
Viðskiptavinurinn velur sjálfur áhættustig fyrir sparnaðarhlutann frá því að vera mjög lágt í það að vera mjög hátt og allt þar á milli.
Einn af kostunum við sparnaðarlausnir okkar er í hvaða umhverfi þær eru, en það skiptir meira máli en margan grunnar.
Sparnaðarlausnir okkur eru í tryggingaumhverfi, sem þýðir að:
Það eru engir eignaskattar
Það eru engir erfðafjárskattar og þar sem sparnaður er af skattlögðu fé er ekki um neina tekjuskatta að ræða við útgreiðslu.
Agi:
Í þeim söfnunartryggingaleiðum sem við bjóðum uppá er venjulega innbyggt hvatakerfi til að halda söfnun áfram og kostnaður ef söfnun er hætt á upphafsárum.
Það er því mikilvægt að þegar reglubundinn sparnaður er hafinn, að markmiðin séu ljós í upphafi og að mánaðarlega sparnaðarupphæðin sé ekki hærri en viðkomandi ráði vel við.
Sparnaðartími að minnsta kosti 10 ár.
Því lengri tími sem sparað er því líklegra er að ávinningurinn verði verulegur. Í sparnaðaráætlunum sem við bjóðum uppá er ávallt miðað við reglubundinn sparnað annað hvort mánaðarlegan eða árlegan.
Viðbótarframlög inn á reglubundinn sparnað
Eftir að reglubundinn sparnaður er hafinn má ávallt auka við hann með viðbótar inngreiðslu, þegar það er gert er ekki ráðlegt annað en að hugsa það framlag sem minnst 5 ára sparnað.
Þetta sparnaðarform nýtur skattalegs hagræðis og sparnaðurinn er ekki aðfararhæfur.
Ráðgjafar T&R eru sérfræðingar í þeim lausnum sem við bjóðum upp á, en ákvörðun um áhættustig er ákveðið af viðskiptavininum sjálfum. Hægt er að breyta um áhættustig á samningstímanum .