Facebook

Viðbótarlífeyrissparnaður

Réttindi til að fá greitt úr lífeyrissjóðum ellilífeyri eða örorkulífeyri er ein mikilvægsta eign eintaklinga sem eru að nálgast "Besta" aldurinn.

Ástæðan er sú að lífeyrir er greiddur mánaðarlega ævilangt og því getur um verulegar fjárhæðir verið að ræða.

Fæstir sem eru að komast á "Besta" aldurinn munu þó fá greidd sem nemur 56% að meðallaunum sínum um starfsævina sem lög um lífeyrissjóði tryggja, þar sem viðkomandi þarf að hafa greitt í 40 ár í lífeyrissjóð svo að þessa verði notið. Auk þessa sem meðallaun um starfsævina eru að öllu jöfnu mun lægri en þau laun sem viðkomandi hafði þegar starfsævinni líkur. Tekjuskerðing við starfslok er því fyrirsjánleg fyrir flesta.

Viðbótarlífeyrissparnaður

Viðbótarlífeyrissparnaður er ein hagkvæmasta sparnaðarleið sem boðið er upp á, vegna þess að þegar að launþegi ákveður að leggja fram 2-4% af óskattlögðum launum sýnum í viðbótarsparnað leggur atvinnurekandi að jafnaði fram 2% á móti hans framlagi. Með framlagi atvinnurekanda getur þú raunverulega verið að tvöfalda framlag þitt í sparnað.

Samkvæmt lögum þá getur útgreiðsla hafist við 60 ára aldur í jöfnum greiðslum eða eingreiðslu.

Viðbótarlífeyrissparnaður er skilgreindur sem sameign hjóna og erfist að fullu við fráfall.

Þar sem um frjálsan sparnað er að ræða, ákveður einstaklingurinn sjálfur hvaða lífeyrissjóður eða líftryggingafélag sér um að ávaxta sparnaðinn.

Ráðgjafar T&R hafa fengið sérstaka fræðslu og hafa því viðamikla þekkingu á þeim leiðum, lögum og reglum sem gilda um viðbótarlífeyrissparnað.

Þrátt fyrir miklar kynningar á kostum viðbótarlífeyrissparnaðar frá þeim aðilum sem bjóða upp á lausnir í þessum efnum, eru enn fjölmargir einstaklingar sem hafa ekki hafið þennan nauðsynlega sparnað.

Því miður hafa alltof margir látið freistast til að taka út sparnað sinn vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda til að létta á skuldabyrði heimilanna, án þess að átta sig á því að um leið er verið að skerða lífsgæði viðkomandi til framtíðar, þegar kominn er tíma til að njóta ævikvöldsins.

 

Viðbótarlífeyrissparnaður

Innskrá