Fyrirbyggðu tjón vegna hálku og hláku
27. jan 2012
Núna er að hlýna á öllu landinu. Eftir langvarandi snjóa- og frostakafla þurfa húsráðendur að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir vatnstjón. Hlýnandi veður eftir snjó og frost þýðir að vatn safnast víða fyrir. Þegar það gerist verða niðurföll að vera hrein til þess að taka við vatninu.
Flest tjón við þessar aðstæður má rekja til þess að ekki var mokað frá niðurföllum og snjór ekki hreinsaður af þökum og svölum. Reynslan sýnir að allt of mörg vatnstjón hefði verið hægt að fyrirbyggja. Þegar hlýnar myndast svell og hálka og er því afar mikilvægt að húseigendur geri sér grein fyrir því að þeir geti verið ábyrgir fyrir þeim óhöppum sem hálkan getur valdið þriðja aðila á lóð húseigna þeirra.
Þetta getur þú gert til að fyrirbyggja tjón:
Heimili
- Vertu viss um að vatn eigi greiða leið að niðurföllum
- Brjóttu klaka við niðurföll og mokaðu snjó frá niðurföllum
- Hreinsaðu sand og lauf frá niðurföllum
- Hreinsaðu snjó af svölum, en gættu þess að hvorki bílar né fólk sé fyrir neðan
- Losaðu klaka og grýlukerti úr þakrennum og af þakskeggi
- Í og við kjallara, glugga og veggi á neðri hæð gæti þurft að moka snjó frá.
- Stráðu sandi eða salti í hálkubletti fyrir utan heimilið þitt
Sumarhús:
- Eftir langa frostakafla þá þarf að huga að vatnslögnum sumarhúsa
- Vatn getur frosið í leiðslum og þegar það hlýnar þá er hætta á vatnstjóni vegna frostsprunginna lagna.
Tryggingavaktin gætir þinna hagsmuna
Fleiri fréttir
-
29. mar 2012Langflest heimili og fyrirtæki eru undirtryggð
-
13. feb 2012Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun
-
19. jan 2012Tryggingavakt fyrirtækja nýjung á Íslandi
-
03. jan 2012Lífeyrismál
-
25. okt 2011Tryggingavaktin gætir hagsmuna viðskiptavina sinna
-
06. okt 2011Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.
-
01. sep 2011Tryggingavaktin
-
24. jún 2011Sjúkdómatryggingar