Facebook

Lífeyrismál

03. jan 2012

Frádráttarbært iðgjald lækkar
Alþingi hefur samþykkt tillögu stjórnvalda um að lækka frádráttarbært iðgjald launþega í viðbótarlífeyrissparnað úr 4% í 2%. Þessi lækkun tók gildi nú um áramót. Lagasetningin kallar ekki á að sjóðfélagar þurfi að breyta núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur þarf launagreiðandi að tryggja að framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldsstofni. Launagreiðendur verða því að lækka sparnað launþega niður í 2% af launum. Engin breyting verður á mótframlagi launagreiðenda, en það er 2% af launum skv. flestum kjarasamningum.

Launagreiðandi skal jafnframt hækka iðgjaldið á ný í 4% að þremur árum liðnum, nema sjóðfélagi óski eftir að sparnaðurinn verði ekki hækkaður aftur. Æskilegt væri að launagreiðendur héldu utan um það á markvissan hátt hjá hverjum iðgjaldið hefur verið lækkað tímabundið til að geta tryggt að sparnaðurinn hefjist að nýju til samræmis við fyrirliggjandi samninga vegna launa fyrir janúar 2015.

Mjög mikilvægt að spara áfram
Sjóðfélagar eru hvattir til að fylgjast vel með launaseðlum sínum til að tryggja að ekki verði misbrestur á framkvæmdinni, en mikið óhagræði felst í því að greiða áfram hærra en 2% af launum í viðbótarlífeyrissparnað vegna tvísköttunar. Mikilvægt er að launagreiðendur, sem standa skil á iðgjaldinu, gæti að þessum þætti við greiðslu launa eftir gildistöku laganna.

Sparnaðarleiðir okkar
Við bjóðum upp á sparnaðarleiðir sem sameina kosti reglulegs sparnaðar og skattalegrar hagræðingar líftryggingar. Erlendis er þessi leið mjög vinsæl auk þess um tugþúsundir landsmanna hafa valið þá leið. Tryggingar og ráðgjöf er eitt af fremstu fyrirtækjum landsins í ráðgjöf í þessari sparnaðarleið.

Sparnaðarlausnir okkar eru í tryggingaumhverfi sem er mikill kostur:

Engir eignaskattar

Engir erfðafjárskattar við fráfall

Ekki um neina tekjuskatta að ræða við útgreiðslu.

Við munum hafa samband við viðskiptavini okkar á næstu dögum og kynna þeim nánar þessi mál.

 

Lífeyrismál

Innskrá