Facebook

Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun

13. feb 2012

Í frétt sem flutt var í Sjónvarpsinu í gærkvöld kom fram að greiðslur úr séreignarsparaði yllu skerðingu á greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins. Þetta er ekki alls kostar rétt.

Hið rétta er samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Tryggingastofnunnar:
“Úttekt séreignarsparnaðar hefur eingöngu áhrif á uppbætur á lífeyri, þ.e.a.s. uppbót vegna kostnaðar (t.d. mikils lyfjakostnaðar) og sérstaka uppbót vegna framfærslu, svokallaða lágmarksframfærslutryggingu, sem tryggir öllum lífeyrisþegum lágmarksgreiðslu ef tekjur þeirra eru undir ákveðnum viðmiðum. Breytir það engu hvort séreignarsparnaðurinn er greiddur mánaðarlega eða sjaldnar.“ Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun eru um 100 einstaklingar sem verða fyrir skerðingu sökum þessa, af u.þ.b. 26.000 lífeyrisþegum TR. Eftir stendur sem áður að greiðslur úr séreignarsparnaði valda ekki skerðingu greiðslna frá TR, þ.e. grunnlífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót. Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu TR: www.tr.is

 

Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun

Innskrá