Tryggingavaktin
Nýung á Íslandi
Tryggingar og ráðgjöf býður nú upp á aukna þjónustu – Tryggingavaktina. Hlutverk Tryggingavaktarinnar er að meta vátryggingarþörf viðskiptavina sinna, hvort sem um ræðir eigna- eða persónutryggingar og leita hagstæðra tilboða í þá vernd sem viðskiptavinur velur. Með reglubundnu millibili setur Tryggingavaktin sig í samband við viðskiptavini til að endurmeta tryggingaþörf þeirra og iðgjöld.
Ef viðskiptavinir verða fyrir tjóni gætir Tryggingavaktin réttar þeirra gagnvart vátryggingafélaginu. Viðskiptavinir eru því hvattir til að leita alltaf fyrst til Tryggingavaktarinnar ef tjón verður. Tryggingavaktin er í samstarfi við reynda lögfræðinga sem veita viðskiptavinum álit þeim að kostnaðarlausu. Tryggingavaktin er nýjung á Íslandi.
,,Við höfum brugðist við óskum fjölmargra viðskiptavina okkar um að bjóða upp á slíka þjónustu og sníða tryggingar að þörfum hvers og eins. Hlutverk Tryggingavaktarinnar er að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna. Með okkar þjónustu er líklegt að viðskiptavinir spari peninga á sama tíma og öryggi þeirra eykst,“ segir Þorsteinn Pétursson, markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar.
Fleiri fréttir
-
29. mar 2012Langflest heimili og fyrirtæki eru undirtryggð
-
13. feb 2012Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun
-
27. jan 2012Fyrirbyggðu tjón vegna hálku og hláku
-
19. jan 2012Tryggingavakt fyrirtækja nýjung á Íslandi
-
03. jan 2012Lífeyrismál
-
25. okt 2011Tryggingavaktin gætir hagsmuna viðskiptavina sinna
-
06. okt 2011Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.
-
24. jún 2011Sjúkdómatryggingar