Tryggingavakt fyrirtækja nýjung á Íslandi
Tryggingar og ráðgjöf hefur aukið þjónustuna enn frekar með því að bjóða upp á Tryggingavakt fyrirtækja, sem er nýjung á Íslandi. Tryggingavaktin metur vátryggingaþörf fyrirtækja og leitar hagstæðra tilboða í þá vernd sem viðskiptavinir velja. Á hverju ári setur Tryggingavaktin sig í samband við viðskiptavini sína til að endurmeta vátryggingavernd fyrirtækisins og iðgjöld.
,,Margir eru óöruggir þegar kemur að því að velja tryggingar. Leiðirnar eru margar og misjafnt hvað hentar hverjum og einum. Við höfum brugðist við óskum fjölmargra viðskiptavina okkar að bjóða upp á þjónustu sem þessa fyrir fyrirtæki. Öll fyrirtæki þurfa á tryggingum að halda, óháð því í hvaða atvinnugrein þau starfa. Óvænt tjón getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu og rekstur fyrirtækisins ef nægjanlegar tryggingar eru ekki fyrir hendi,“ segir Þorsteinn Pétursson, markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar.
Þorsteinn segir að þetta ferli taki til skaðatrygginga eins og ábyrgðartryggingu bifreiða, launþegatryggingu, lausafjártryggingu, rekstrarstöðvunartryggingu og trygginga lykilmanna fyrirtækja. Tryggingavaktin aðstoðar viðskiptavini sína við útfyllingu tjónaskýrslu þegar þörf er á. Tryggingavaktin er í samstarfi við lögfræðistofuna Lagarök og ráðgjafafyrirtækið Fortia Finance, sem annast ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja. ,,Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á lögfræðiráðgjöf í tryggingatengdum málum og ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja hjá samstarfsaðilum okkar. Álit á fyrsta fundi með lögfræðingum og fjármálaráðgjöfum er viðskiptavinum okkar að kostnaðarlausu,“ segir Þorsteinn.
Fleiri fréttir
-
29. mar 2012Langflest heimili og fyrirtæki eru undirtryggð
-
13. feb 2012Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun
-
27. jan 2012Fyrirbyggðu tjón vegna hálku og hláku
-
03. jan 2012Lífeyrismál
-
25. okt 2011Tryggingavaktin gætir hagsmuna viðskiptavina sinna
-
06. okt 2011Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.
-
01. sep 2011Tryggingavaktin
-
24. jún 2011Sjúkdómatryggingar