Tryggingavaktin gætir hagsmuna viðskiptavina sinna
Tryggingar og ráðgjöf býður nú upp á aukna þjónustu – Tryggingavaktina, sem er nýjung á Íslandi. Hlutverk Tryggingavaktarinnar er að meta vátryggingarþörf viðskiptavina sinna, hvort sem um ræðir eigna- eða persónutryggingar og tryggja þeim ódýrustu og jafnframt bestu tryggingarnar hverju sinni. Með reglubundnu millibili setur Tryggingavaktin sig í samband við viðskiptavini til að endurmeta tryggingaþörf þeirra og iðgjöld.
,,Við höfum brugðist við óskum fjölmargra viðskiptavina fyrirtækisins að bjóða upp á slíka þjónustu og sníða tryggingar að þörfum hvers og eins. Tryggingar eru breytilegar og það þarf að skoða þær með reglubundnum hætti. Þetta ferst fyrir hjá mörgum og oft er tryggingaumhverfið hálgerður frumskógur í huga fólks. Tryggingavaktin fer yfir vátryggingar hjá viðskiptavinum sínum og sér til þess að þeir séu rétt tryggðir og borgi lægstu iðgjöldin sem bjóðast hverju sinni,“ segir Þorsteinn Pétursson, markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar.
,,Ef viðskiptavinir verða fyrir tjóni gætir Tryggingavaktin réttar þeirra gagnvart vátryggingafélaginu. Viðskiptavinir eru því hvattir til að leita alltaf fyrst til Tryggingavaktarinnar ef tjón verður. Tryggingavaktin aðstoðar þannig viðskiptavini að fá greiddar bætur. Tryggingavaktin er í samstarfi við reynda lögfræðinga hjá lögmannsstofunni Lagarök sem veita viðskiptavinum álit þeim að kostnaðarlausu,“ segir Þorsteinn.
Tryggingar og ráðgjöf er stærsta vátryggingarmiðlun Íslands með yfir 40 þúsund viðskiptavini og hefur áralanga reynslu á sviði tryggingarmála. ,,Við erum stolt af því að vera fyrsta og eina fyrirtækið á Íslandi sem býður upp á Tryggingavaktina. Rúmlega 1200 viðskiptavinir hafa nú þegar skráð sig í Tryggingavaktina. Við höfum lækkað iðgjöld þeirra að meðaltali á bilinu 30-50 þúsund krónur. Með þessari þjónustu er mjög líklegt að viðskiptavinir spari talsverða peninga á sama tíma og öryggi þeirra eykst,“ segir Hákon Hákonarson, eigandi Tryggingar og ráðgjafar.
Fleiri fréttir
-
29. mar 2012Langflest heimili og fyrirtæki eru undirtryggð
-
13. feb 2012Skerða ekki greiðslur frá Tryggingastofnun
-
27. jan 2012Fyrirbyggðu tjón vegna hálku og hláku
-
19. jan 2012Tryggingavakt fyrirtækja nýjung á Íslandi
-
03. jan 2012Lífeyrismál
-
06. okt 2011Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.
-
01. sep 2011Tryggingavaktin
-
24. jún 2011Sjúkdómatryggingar