Facebook

Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.

Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.
06. okt 2011

Tryggingavaktin og Lagarök lögmannsstofa hafa undirritað samstarfssamning um þjónustu við viðskiptavini Tryggingavaktarinnar. Lagarök mun sjá um öll mál viðskiptavina Tryggingavaktarinnar og á það bæði við um þau mál sem snúa að réttindum gagnvart tryggingarfélagi eða önnur mál sem viðkomandi viðskiptavinur vill fá álit lögmanns á.

,,Við erum mjög ánægð og stolt að fá jafn öfluga lögmannsstofu og Lagarök til samstarfs við Tryggingavaktina. Okkar markmið er að hagsmunir viðskiptavina séu hafðir í fyrirrúmi. Með þessum samstarfssamningi erum við að tryggja að viðskiptavinir Tryggingavaktarinnar fái bestu þjónustu sem völ er á,“ segir Þorsteinn Pétursson, markaðsstjóri Tryggingavaktarinnar.

,,Ef viðskiptavinir verða fyrir tjóni gætum við réttar þeirra gagnvart vátryggingafélagi. Viðskiptavinir eru því hvattir til að leita alltaf fyrst til Tryggingavaktarinnar ef tjón verður. Lögmenn hjá Lagarökum munu veita okkar viðskiptavinum álit þeim að kostnaðarlausu,“ segir Þorsteinn.

,,Lögmannsstofan Lagarök var stofnuð árið 1982 og hafa lögmenn hennar mikla reynslu á flestöllum sviðum lögfræðinnar m.a. í vátryggingarrétti,“ segir Ágúst Ólafsson héraðsdómslögmaður hjá Lagarökum.

,,Það er okkur mikið ánægjuefni að ganga til samstarfs við Tryggingavaktina. Við munum leggja okkur alla fram við að veita viðskiptavinum fyrirtækisins eins og öllum okkar viðskiptavinum góða og árangursríka þjónustu,“ segir Ágúst.

 

Tryggingavaktin í samstarf við Lagarök lögmannsstofu.

Innskrá