Öryggi
Það réttir þér enginn regnhlíf, þegar rignir - þannig er lífið. Þú þarft að hugsa um öryggi þitt sjálfur. Þó enginn sé verri þó hann vökni, þá er það samt sem áður staðreynd að í lífinu gerist margt verra en að blotna.
Við hjá T&R viljum rétta þér hjálparhönd með því að aðstoða þig við að vera tryggður ef óvæntir atburðir gerast.
Líf þitt og heilsa, maka þíns og barna, skiptir máli vegna þess að ef fráfall ber að höndum eða alvarlegur heilsubrestur ógnar fjárhaglegu öryggi þínu og fjölskyldunnar, þá er nauðsynlegt að þú og/eða þínir geti átt fjárhagslegt skjól.
Lífeyrissjóðir, sjúkrasjóðir verkalýðsfélga og ríkið veita vissulega ákveðna hjálp ef alvarlegt áfall verður. Því miður þá dugar það oftast skammt. Skuldir fyrnast ekki, gjalddagar halda áfram að koma, reglubundnar launatekjur sem áður voru, eru kannski ekki lengur til staðar og því miður hefur fæstum tekist að byggja um varasjóð til að takast á við ófyrirséða atburði.
Við teljum að það sé okkar hlutverk að upplýsa þig og aðstoða við að tryggja þig og þínu nánustu fyrir því ef þú eða fjölskyldan þín upplifir erfiðleika sem þessa, þá sé fjárhagslegt öryggi ykkar samt sem áður tryggt.