Facebook

Öryggi þitt og fjölskyldu þinnar

Sjúkdómatrygging

Ef þú greinist með alvarlegan bótaskyldan sjúkdóm færðu vátryggingafhárhæðina greidda sem skattfrjálsa eingreiðslu, óháð því hvort að þú verður aftur vinnufær eða ekki. Að því búnu fellur tryggingin úr gildi. Þetta gæti komið þér til góða við að létta fjárhagslegar byrðar þínar og fjölskyldu þinnar. Því miður þá þarf að halda áfram að greiða útgjöld þrátt fyrir alvarlega sjúkdóma.

Sjúkdómatrygging vegna alvarlegra sjúkdóma er raunveruleg vernd fyrir þig og þína nánustu og því miður reynir allt of oft á þessa vátryggingavernd. En sem betur fer lifa fleiri og fleiri það af að greinast með alvarlegan sjúkdóm.

Það eru í boði á vátryggingamarkaði mismunandi skilmálar um sjúkdómatryggingar bæði hvað varðar bótasvið og iðgjaldagreiðslur.

Iðgjaldagreiðslur frá flestum íslenskum vátryggingafélögunum eru stighækkandi, þ.e. iðgjald hækkar með hækkandi aldri, enda líklegt að áhætta vátryggingafélagsins sé að aukast. Það hefur þó því miður þau áhrif að margir gefast upp á að viðhalda verndinni vegna hárra iðgjalda. Á íslenska vátryggingamarkaðnum er einnig boðið upp á mjög víðtæka vátryggingavernd á jafnaðariðgjaldi, sem þýðir að iðgjaldið er hærra þegar verndin er tekin, en iðgjaldið og vátryggingafjárhæðin haldast óbreytt til samningsloka.

Öryggi þitt og fjölskyldu þinnar

Ráðgjafar T&R skýra út fyrir viðskiptavinum okkar kosti þeirra leiða sem í boði eru, mismun iðgjalda og vátryggingaverndar hverrar vöru fyrir sig, enda viljum við að viðskiptavinir okkar taki ávallt upplýstar ákvarðanir um öryggi sitt og sinna nánustu.

Við höfum látið taka saman bótakröfur sem gerðar voru árið 2008 og flokkað þær eftir sjúkdómum.

  • Hjarta-og æðasjúkdómar 12%
  • Heila-og mænusigg (MS) 4%
  • Heilablæðing 5%
  • Barnatrygging 4%
  • Góðkynja heilaæxli 3%
  • Annað 17%
  • Krabbamein 55%

Vissir þú einn af hverjum þremur greinast með krabbamein?

  • (Það er ekki allt krabbamein bótaskylt samkvæmt skilmálum tryggingarinnar, vinsamlega skoðið skilmála)

Hjá einum samstarfsaðila okkar var árið 2010

87,3% af bótakröfunum greiddar

4,0% af bótakröfunum var hafnað vegna þess að viskiptavinurinn hafði ekki gefið fullkomnar og nákvæmar upplýsingar þegar hann sótti um trygginguna.

8,7% þeirra bótakrafna sem ekki voru greiddar, voru vegna sjúkdóma sem ekki féllu undir bótaskyldu samkvæmt skilmálum tryggingarinnar.

Tryggingar og ráðgjöf styður þig alla leið

Við lítum á þig sem einstakling og gerum okkur grein fyrir að þú og fjölskylda þín getur þurft að ganga í gegnum erfiða tíma. Þess vegna höfum við þróað og aukið bótaþjónustu okkar og stuðning þegar þú þarft mest á því að halda.

Hvers þörfnumst við frá þér.....

Til að aðstoða vátryggjendur okkar og bótadeildina, er mikilvægt að þú gefir upp fullar og nákvæmar upplýsingar á umsókn þína eins og:

  • Sjúkrasögu þína og núverandi heilsufar
  • Hæð þína og þyngd
  • Áfengis og tóbaksnotkun

Við höfum þróað hjá okkur umsóknarferli sem á að vera eins einfalt og mögulegt er, en á þó að veita öllum viðskiptavinum samræmda og sanngjarna meðferð. Til að þú skiljir umsóknarferli okkar betur, höfum við gefið út „Leiðbeiningar um áhættumat“ sem leiðir þig í allan sannleikann um hvað þú þarft að gera varðandi umsókn þína og þar eru upplýsingarnar sem við þörfnumst frá þér settar fram í einstökum atriðum.

Til að fá nánari aðstoð varðandi upplýsingarnar sem þú þarft að gefa lestu þá „Leiðbeiningarnar um áhættumat“, sem þú getur fengið hjá ráðgjafa þínum.

Við viljum að þú fáir bótakröfuna þína greidda......

Ef gera þarf bótakröfu og til að tryggja að þú fáir þá vátryggingafjárhæð sem þú býst við úr tryggingunni, verður þú að gefa fullkomin og nákvæm svör við þeim spurningum sem spurt er um á umsóknarstiginu. Til frekari upplýsinga ræddu við ráðgjafa T&R.

Til að hjálpa þér að skilja trygginguna þína........

Til að aðstoða þig við að skilja hvaða sjúkdóma tryggingin þín bætir, hafa verið gerðir leiðbeiningabæklingar. Hægt er að fá bæklinginn hjá ráðgjafa þínum. Þetta er bæklingur á íslensku þar sem það er skýrt á mannamáli hvaða sjúkdómar eru bótaskyldir samkvæmt tryggingunni.

 

Alvarlegir sjúkdómar

Innskrá