Facebook

Það er fátt mikilvægara en lífið sjálft.

Það skilja allir framfærendur að líftrygging er nauðsynleg grunnvernd fyrir fjölskylduna.

Líftrygging er í eðli sínu mjög einföld vátrygging. Ef hinn tryggði fellur frá á samningstímanum, hvort sem er af völdum veikinda eða slyss, greiðist út umsamin vátryggingarfjárhæð til eftirlifandi maka eða til þeirra sem skráðir eru rétthafar líftryggingafjárhæðarinnar á vátryggingarumsókninni. Allir sem hafa skammtíma- eða langtímaskuldbindingar eða hafa börn á framfæri, ættu að vera líftryggðir. Líftryggingabætur geta aldrei bætt þann skaða sem fjölskyldan verður fyrir við fráfall ástvinar, en bæturnar eru ætlaðar til að hjálpa eftirlifendum að endurskipuleggja líf sitt. Það er fátt mikilvægara en lífið sjálft.

Þegar óskað er eftir líftryggingu er mjög mikilvægt að öllum spurningunum sé svarað samviskusamlega af vátryggingataka sjálfum. Oft þarf vátryggingataki að svara viðbótarspurningum varðandi heilsufar sitt. Ef vátryggingafélagi finnst þörf á, getur það kallað eftir læknaskýrslu og/eða læknisskoðun.

Við ákvörðun vátryggingafjárhæðar er gott að hafa sem viðmiðun eigna-/skuldastöðu, fjölda barna á framfæri, greiðslubyrði lána og a.m.k. 2ja ára nettólaun.

Ráðgjafar T&R aðstoða við ákvörðun á líftryggingafjárhæð ef óskað er.

Það sem ræður iðgjaldi líftryggingar er aldur viðkomandi, kyn, heilsufar, hvort hann reykir, tímalengd samnings og vátryggingarfjárhæð.

 

Lífið sjálft

Innskrá