Einstaklingar
Tryggingavaktin gætir þinna hagsmuna
Með Tryggingavaktinni er ekki bara líklegt að við spörum þér peninga, við veitum þér einnig aukið öryggi.
Það er varla til sú vátrygging sem bætir öll hugsanleg tjón. Vátryggingaskilmálar eru samdir af tryggingasérfræðingum með því markmiði að búa til samning sem er hægt að markaðsetja, en á sama tíma þarf hann að vera arðbær fyrir tryggingafélagið.
Tryggingavaktin er sniðin að því að jafna leikinn.
Við búum að áralangri reynslu í að eiga við vátryggingafélög í tjónamálum og við erum í samstarfi við sérhæfða lögfræðinga á sviði bótamála. Viðskiptavinir Tryggingavaktarinnar geta fengið lögfræðiálit í hvaða máli sem er, þeim að kostnaðarlausu.
Tryggingar eru í raun eins og hvert annað öryggistæki sem þarf að endurnýja árlega eins og að skipta um rafhlöðu á brunaboðanum, skoða bílinn eða fara í reglulega læknisskoðun. Það er dýrt að tryggja, fjárhagslegir hagsmunir eru miklir og ef þú hugsar ekki um að endurnýja, þá gerir vátryggingafélagið það fyrir þig með þeim kostnaði sem að það ákvað – ekki þú.
Það ríkir samkeppni á vátryggingamarkaði þó að vátryggingafélögin séu ekki mörg. Fyrir flesta eru vátryggingar eins og að ganga um í þoku án áttavita.
Tryggingavaktin aðstoðar þig við að velja ódýrasta kostinn og að endurmeta vátryggingaþörf næsta árs.