Tryggingar og ráðgjöf
Tryggingar og ráðgjöf er stærsta vátryggingamiðlunin á Íslandi með yfir 40 000 viðskiptavini og fyrsta og eina fyrirtækið á Íslandi til að bjóða upp á Tryggingavaktina – fjárhagslegt öryggi fyrir einstaklinga og fjölskyldur.
Við erum stoltir af því að hafa í hart nær 10 ár aðstoðað viðskiptavini okkar að finna lausnir til að styrkja fjárhagslega stöðu sína til framtíðar. Bæði á erfiðum og góðum tímum erum við til staðar fyrir þig, í gleði og sorg hjálpum við þér við að lifa lífinu við öryggi.
Tryggingar og ráðgjöf er löggilt vátryggingamiðlun og starfar undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Tryggingar og ráðgjöf er óháð vátryggingamiðlun og á ekki í neinu eignasambandi við tryggingafélög. Markmið T&R er fyrst og fremst að gæta hagsmuna viðskiptavinarins.
Hlutverk vátryggingamiðlara er að meta vátryggingaþörf viðskiptavinarins, ráðleggja og leita hagstæðustu tilboða í þá vernd sem viðskiptavinurinn velur. Ef viðskiptavinurinn verður fyrir tjóni, gætum við réttar hans gagnvart vátryggingafélaginu.
Með reglubundnu millibili setjum við okkur síðan í samband við viðskiptavini okkar til að endurmeta vátryggingavernd þeirra, fara yfir þá samninga sem þegar eru í gildi og athuga hvort þörf eða vilji sé til að breyta eða bæta þar um.
T&R hefur sett af stað nýtt þjónustukerfi, fyrst allra fyrirtækja á Íslandi, sem er TRYGGINGAVAKTIN.