Facebook

Tryggingavaktin gætir þinna hagsmuna Lægra verð - rétt vernd Aðstoð við tjón Fjármögnun fyrirtækja Hvað ætlar þú að gera á þínum eftirlaunum?

Algengar spurningar

Mjög mikilvægt að lesa vel áður en uppsögn er undirrituð.

Iðgjöld Líf- og sjúkdómatrygginga Friends Provident eru svokölluð jafnaðariðgjöld, þ.e. iðgjaldið er reiknað út við töku tryggingarinnar og er þá miðað við aldur, kyn, tímalengd samnings o.fl. Það iðgjald er síðan greitt til loka tryggingarinnar. Miðað við samningstíma er jafnaðariðgjald meira en helmingi ódýrara en stighækkandi iðgjald. Það er því ekki skynsamlegt til lengri tíma litið að segja slíkum tryggingum upp. Væntanlega er ástand gengismála tímabundið, það þarf að líta á heildarmyndina. Ef tryggingum með jafnaðariðgjaldi er sagt upp og fyrirhugað að taka nýja tryggingu þegar ástandið lagast, yrði sú trygging dýrari sem nemur þeim tíma sem liðinn er af gömlu tryggingunni. Ekki má segja upp líf- og/eða sjúkdómatryggingu fyrr en fengist hefur samþykki fyrir nýrri. Það er ekki víst að ný trygging fáist ef breyting hefur orðið á heilsufari.

Í líftryggingunni er hægt að lækka vátryggingafjárhæðina og þar með iðgjaldið.

Hafðu alltaf samband við ráðgjafann þinn ef þú vilt hætta eða gera breytingar á líf- og sjúkdómatryggingunum þínum.

Sendu póst á tryggir@tryggir.is og ráðgjafinn þinn mun hafa samband.

Nýtt kortanúmer þarf að tilkynna til viðkomandi félags. Best er að senda tölvupóst með kortanúmeri og gildistíma nýja kortsins. Munið að taka fram þau samningsnúmer sem þið viljið að kortið nái til, en ef númerin eru ekki fyrir hendi, þarf að taka fram nafn og fæðingardag tryggingataka og hvort að skuldfæra eigi allar eða aðeins hluta trygginganna ef þær eru fleiri en ein.

Friends Provident

Þjónustusími: 00 44 1722 311 611
Netfang: GM-IcelandBrokers@friendsprovident.co.uk

Sun Life

Þjónustusími 00 44 117 989 1762
Netfang: ALITeam.LIFE@axa-sunlife.co.uk

Óska þarf eftir bótakröfuformi frá viðkomandi tryggingafélagi.

Friends Provident

Þjónustusími 00 44 1722 311 611
Netfang: GM-IcelandBrokers@friendsprovident.co.uk

Sun Life

Þjónustusími 00 44 117 989 1762
Netfang: ALITeam.LIFE@axa-sunlife.co.uk

Eyðublöðunum þarf svo að svara ítarlega og senda til baka. Þegar tryggingfélagið hefur fengið kröfuna munu þeir kalla eftir þeim gögnum sem þeir telja sig þurfa á að halda við mat bótakröfunnar. Þessi gögn sækja þeir að mestu til lækna hins tryggða, en einnig gætu þeir óskað eftir frekari svörum frá hinum tryggða sjálfum.

Sun Life og Friends Provident senda yfirlit árlega. Ef þér hafa ekki borist yfirlit, er líklegasta skýringin sú að þú hafir skipt um heimilisfang frá töku samningsins, en það ekki verið tilkynnt til tryggingafélagsins.

Hægt er að óska eftir aukayfirliti hvenær sem er, annaðhvort með því að senda tölvupóst eða hringja til viðkomandi félags. Við beiðnina þarf að taka fram samningsnúmerið og einnig þarf að bæta við „and all clusters“ þegar óskað er yfirlits yfir samninga hjá Friends Provident. Það þarf að biðja um yfirlitið í prentuðu formi frá Sun Life þar sem þeir senda ekki lengur gögn beint til viðskiptavina í tölvupósti. Það er því nauðsynlegt að gefa þeim upp rétt heimilisfang.

Friends Provident

Þjónustusími 00 44 1722 311 611
Netfang: GM-IcelandBrokers@friendsprovident.co.uk

Sun Life

Þjónustusími: 00 44 117 989 1762
Netfang: ALITeam.LIFE@axa-sunlife.co.uk

Ef þú vilt segja upp sparnaðarsamningi þínum biðjum við þig um að skoða málið mjög vel áður en þú heldur áfram.

Það er alltaf hægt að innleysa sparnaðinn, en það getur verið að það sé ekki skynsamlegt eins og sakir standa. Samningurinn er langtímasamningur og því fyrr sem hann er innleystur, því líklegra er að inneignin sé lægri en það sem greitt hefur verið inn. Það fer þó eftir ýmsu, t.d. stöðu sjóða og fleiri atriðum - Sjá sjóðayfirlit Sun Life og Friends Provident.

Sparnaðurinn er bundinn í einingum í hluta- og skuldabréfasjóðum, en slík markaðsbréf hafa undanfarin misseri verið að lækka um allan heim. Verðmæti sjóðanna getur því verið lágt um þessar mundir vegna stöðu á markaði. Að sama skapi fást nú mun fleiri fyrir einingar fyrir iðgjaldið, þannig að þegar sjóðirnir hækka á ný, skilar hækkunin sér hraðar til sjóðsfélaga vegna fjölda eininga. Sjá nánar: Einingar . Frá því að uppsögnin er send út, geta liðið 2 -3 vikur þar til greiðsla berst.

Ef þú vilt segja upp samningi þínum, biðjum við þig að hafa samband við ráðgjafa á tryggir@tryggir.is eða í síma 590-1600.

Einnig má hafa beint samband við félagið sem um ræðir:

Friends Provident

Þjónustusími 00 44 1722 311 611
Netfang: GM-IcelandBrokers@friendsprovident.co.uk

Sun Life

Þjónustusími: 00 44 117 989 1762
Netfang: ALITeam.LIFE@axa-sunlife.co.uk

 

Algengar spurningar

Innskrá