Ef þú vilt segja upp sparnaðarsamningi þínum biðjum við þig um að skoða málið mjög vel áður en þú heldur áfram.
Það er alltaf hægt að innleysa sparnaðinn, en það getur verið að það sé ekki skynsamlegt eins og sakir standa. Samningurinn er langtímasamningur og því fyrr sem hann er innleystur, því líklegra er að inneignin sé lægri en það sem greitt hefur verið inn. Það fer þó eftir ýmsu, t.d. stöðu sjóða og fleiri atriðum - Sjá sjóðayfirlit Sun Life og Friends Provident.
Sparnaðurinn er bundinn í einingum í hluta- og skuldabréfasjóðum, en slík markaðsbréf hafa undanfarin misseri verið að lækka um allan heim. Verðmæti sjóðanna getur því verið lágt um þessar mundir vegna stöðu á markaði. Að sama skapi fást nú mun fleiri fyrir einingar fyrir iðgjaldið, þannig að þegar sjóðirnir hækka á ný, skilar hækkunin sér hraðar til sjóðsfélaga vegna fjölda eininga. Sjá nánar: Einingar . Frá því að uppsögnin er send út, geta liðið 2 -3 vikur þar til greiðsla berst.
Ef þú vilt segja upp samningi þínum, biðjum við þig að hafa samband við ráðgjafa á tryggir@tryggir.is eða í síma 590-1600.
Einnig má hafa beint samband við félagið sem um ræðir:
Friends Provident: Þjónustusími 00 44 1722 311 611 - netfang: GM-IcelandBrokers@friendsprovident.co.uk
Sun Life: Þjónustusími (Anne Jones) 00 44 117 989 1762 - netfang: ALITeam.LIFE@axa-sunlife.co.uk