|
|
|
|
|
|
|
|
Sparnaður fólks getur verið margvíslegur og í ólíku formi. Sú sparnaðarleið sem flestir þekkja líklega best er bankabókin. Undanfarin ár hafa hins vegar miklar breytingar orðið á þessum vettvangi og standa fólki nú til boða mun fleiri möguleikar en hin hefðbundna bankabók. Sem dæmi má nefna að hver og einn getur keypt sér hlutabréf, sem hækka og lækka eftir sveiflum markaðarins. Einnig eru til hlutabréfasjóðir, þar sem fólk fjárfestir í hlutabréfum en þó með nokkru minni áhættu en að kaupa stök hlutabréf. Sparnaður sá sem T&R býður viðskiptavinum sínum er tvenns konar. Annarsvegar er í boði tryggingatengdur sparnaður og hinsvegar viðbótarlífeyrissparnaður sem settur var á með lögum sem tóku gildi 1. janúar 1999. Ólíkar leiðir í þeim efnum má skoða með því á smella á tenglana hér til vinstri á síðunni. |
|
|
Tryggingar og ráðgjöf ehf | Skeifunni 19 | 108 Reykjavík | Sími 590 1600 | Fax 590 1601 | Opið 9-12 og 13-17 | tryggir@tryggir.is  |
|