|
|
|
|
|
|
|
Tryggingarfélagið Allianz var stofnað í Berlín 5. febrúar 1890. Allianz er næst stærsta tryggingasamsteypa veraldar með starfsemi í 77 þjóðlöndum, 160 þúsund starfsmenn og um 60 milljónir viðskiptavina. Í Þýskalandi einu eru yfir 8 milljónir líftryggingasamninga hjá Allianz Lebenversicherungs-AG.Allianz er löngu þekkt fyrir áreiðanleika sinn og traust, þeim orðum til stuðnings má nefna að í júní 2000 fékk það hæstu einkunn, AAA, hjá hinu virta matsfyrirtæki Standards & Poors. Þessi viðurkenning sýnir að Allianz er í flokki virtustu og áreiðanlegustu fyrirtækja á sínu sviði í heiminum. Ekkert íslenskt fyrirtæki eða stofnum hefur fengið þessa einkunn. Allianz á, að hluta eða í heild, fjölmörg tryggingarfélög, endurtryggingarfélög, banka og stórfyrirtæki innan og utan Þýskalands eins og Dresdner Bank, RAS, AGF og Pimco. Þá er Allianz með stór útibú víða um heim, sbr. Allianz Australia, Allianz Hungaria, Allianz India, Allianz China ofl. Allianz státar af góðu gengi seinustu 120 árin, hagnaður fyrirtækisins og vöxtur hefur þó aldrei verið meiri en á undanförnum árum. Allianz opnaði skrifstofu á Íslandi í nóvember 1994 og býður nú Íslendingum líf- og slysatryggingar í gegnum Allianz Leben og Allianz Versicherung í Stuttgart. Einnig sjóði Allianz í gegnum Allianz Dresdner Global Investors. Íslendingar hafa tekið þjónustu Allianz fegins hendi frá byrjun enda koma þýsk lög og staðlar viðskiptavinum félagsins til góða. Skrifstofa Allianz Ísland er beintengd við höfuðstöðvar Allianz í Stuttgart sem tryggir skjóta og örugga þjónustu. Allianz á Íslandi er í eigu BYR sparisjóðs. |
|
|
Tryggingar og ráðgjöf ehf | Skeifunni 19 | 108 Reykjavík | Sími 590 1600 | Fax 590 1601 | Opið 9-12 og 13-17 | tryggir@tryggir.is  |
|